top of page

Vellíðan í starfi?

Er ég góður starfsmaður eða fullur sjálfsblekkingar? Kannski of upptekinn við það að vera upptekinn? Er ég jafnvel stikkfrí þegar kemur að því að bæta liðsheildina? Hvað felst í því að góður og gegn starfsmaður?

    Það er mikilvægt að vera í góðu jafnvægi til að geta blómstrað sem einstaklingur og starfsmaður. Glíma lífsins er glíman við okkur sjálf. Það er að takast á við lífið. „Maðurinn einn er ei nema hálfur .... en með öðrum er hann meira en hann sjálfur.“ (Einar Ben.)


Ég hef mikla reynslu af því að vera hluti af liðsheild, fyrst sem fyrirliði Vals í knattspyrnu, blaðamaður og ritstjóri, framkvæmdastjóri tóbaksvarnanefndar, formaður Vals og síðan sem starfsmaður landsliðsins í fótbolta sem tók þá í EM 2016 og HM 2018. Ég var þátttakandi í því að sjá liðsheild verða að veruleika – þegar leikmenn fengu að taka þátt í mikilvægum ákvörðunum, fóru að huga að litlu hlutunum og einbeita sér árangri fyrir liðið frekar en sjálfa sig.

​

Fyrirlesturinn Vellíðan í starfi er í boði fyrir fyrirtæki, vinahópa, íþróttafélög og í raun allan félagskap. Fyrirlesturinn tekur um 30 mínútur.


Til að bóka fyrirlestur er best að hafa samband á andi@andi.is

eða slá á þráðinn í 661 4000


Þorgrímur Þráinsson

Eftir hverju ertu að bíða?

Fyrirlestur fyrir iðkendur í 2., 3. eða 4. flokki í knattspyrnu, eða í raun í hvaða íþróttagrein sem er. Það gerist ekkert af sjálfu sér! Það æfir enginn fyrir þig! Hver ertu þær 22 klukkustundir sem þú ert EKKI á æfingu? Hvað skiptir mestu máli til að ná frábærum árangri? Ertu góð manneskja?

 

 Þorgrímur Þráinsson lék um 400 leiki fyrir Val, 17 landsleiki, 14 leiki í Evrópukeppni, starfaði með landsliðinu í fótbolta í 14 ár og vann því með Lars Lagerback og Heimi Hallgrímssyni. Auk þess hefur hann unnið við að halda fyrirlestra fyrir ungt fólk í tvo áratugi.

​

Nánari upplýsingar á andi@andi.is

Fyrirlestur fyrir foreldra

Ég hef ákveðið að bjóða upp á fyrirlesturinn VERUM ÁSTFANGIN AF LÍFINU fyrir foreldra, ekki síst ef þeir eiga nemendur í 10. bekk. Í vetur mun ég hitta um 5000 nemendur í 10. bekk og víða úti á landi líka nemendur í 8. og 9. bekk, sökum fámennis. Aðeins fjórir, fimm skólar kjósa að svara ekki fyrirspurn minni jafnvel þótt fyrirlesturinn sé skólum að kostnaðarlausu. 

 

Ég hef áttað mig á því að sum foreldrafélög eru nánast að lognast útaf, af því sífellt færri taka að sér sjálfboðavinnu. Engu að síðar þarf ekki nema frumkvæði eins foreldris til að óska eftir fyrirlestrinum fyrir alla. Hjá mér eru allir foreldrar velkomnir, hvort sem þeir eiga krakka í 10. bekk, 5. eða 1. bekk.

 

Fyrirlesturinn tekur 40 mínútur og samanstendur af um 40 glærum og myndböndum. Fyrirtækni Brim, Bláa Lónið og N1 gera mér kleift að bjóða upp á fyrirlesturinn út um allt land.

 

Ég fjalla um miklvægi þess að vera góð manneskja, hjálpa öðrum, sinna litlu hlutunum daglega, gera eitthvað frábært alla daga, ekki fresta nein, passa upp á svefninn, setja sér markmið, hrósa og svo mætti lengi telja.

 

Netfangið mitt er andi@andi.is 

bottom of page