top of page

Þorgrímur Þráinsson

Fæddur í kjallaranum að Tómasarhaga 39 í Reykjavík, þann 8. janúar 1959. Bjó í Ólafsvík á aldrinum 11 ára til 22 ára. Gekk í Landakotsskóla, Kópavogsskóla, grunnskóla Ólafsvíkur og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1980. Stundaði frönskunám í Sorbonne háskóla í París 1983-1984. Í kjölfarið tók skóli lífsins við. 

 

Ritstjóri Íþróttablaðsins frá 1985 til 1996, ennfremur blaðamaður hjá Frjálsu framtaki, síðar Fróða á þessum árum. Framkvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar 1996-2004, á vegum heilbrigðisráðherra.

 

Formaður nefndar um bætt heilbrigði þjóðarinnar 2005 til 2007, skipaður af forsætisráðherra, Halldóri Ásgrímssyni. Sex árum síðar í forsvari fyrir ráðherranefnd um bætt heilbrigði þjóðarinnar, sem var skipuð af heilbrigðisráðherra. Og árið 2014 aftur í nefnd um bætt heilbrigði, skipaður af ráðherra.

 

ÞÞ lék tæplega 200 leiki með Val í efstu deild í fótbolta á árunum 1979-1990. Þar á undan lék hann 39 leiki með Víkingi Ólafsvík og að síðustu með Stjörnunni í 1. deild árið 1992. Hann var fyrirliði Vals síðustu fimm tímabilin. Varð Íslandsmeistari í þrígang, tvisvar bikarmeistari og lék 14 leiki með Val í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni, m.a. gegn Juventus, Aston Villa, Monaco, Nantes, Wismut Aue og Dynamo Berlin. Þá tók hann þátt í vináttuleik með Val gegn Manchester United árið 1984. George Best lék með Val í fyrri hálfleik en sínu gamla liði í síðari hálfleik.

 

Fyrsta bók ÞÞ leit dagsins ljós 1989, með Fiðring í tánum en bækurnar voru orðnar 44 talsins árið 2022.

 

Haustið 2012 gaf ÞÞ öllum landsmönnum ókeypis aðgang að átta bóka sinna sem var hægt að hlaða niður af emma.is og var gjöfin kynnt í öllum skólum landsins. Nemendum gafst þar með kostur á að lesa bækurnar á rafrænu formi, minnka og stækka letur eftir hentugleika, sem kom sér vel fyrir þá sem glímdu við lestrarerfiðleika. Gjöfin var endurtekin í mars 2020.

 

Síðastliðin 20 ár hefur ÞÞ skipulega heimsótt alla grunnskóla landsins, árlega, og haldið fyrirlestur fyrir 10. bekk sem hann kallar; Verum ástfangin af lífinu. ÞÞ hefur því hvatt ungt fólk til dáða, blásið þeim anda í brjóst í tvo áratugi. Lauslega áætlað hefur hann því haldið fyrirlestur fyrir um 100.000 núlifanda Íslendinga, fyrir utan erindin sem hann hefur haldið fyrir miðstig, skapandi skrif og fleira. Þá hefur hann haldið fjölda fyrirlestra fyrir starfsfólk fyrirtækja, kennara, landsliðið í fótbolta, sérsambönd, íþróttafélag og ýmis félagasamtök.

 

  ÞÞ starfaði með karlalandsliðinu í knattspyrnu í fjórtán ár og fór með liðinu á Evrópumeistaramótið í Frakklandi árið 2016 og á heimsmeistaramótið í Rússlandi 2018. Hans hlutverk var margvíslegt.

 

 Á þrjátíu og sex ára ferli sem rithöfundur hefur ÞÞ tvívegis fengið úthlutað úr launasjóði rithöfunda, samtals 12 mánuði! Þá hefur hann 8 sinnum hlotið verðlaun fyrir barna- og unglingabækurnar, þar af fjórum sinnum í skjóli nafnleyndar.

 

  • 2019   Tilnefning, besta barnabókin 2018; Henri rænt í Rússlandi

  • 2018  Tilnefning, besta barnabókin 2017; Henri hittir í mark.

  • 2016   Viðurkenning Barnaheilla fyrir að efla æsku landsins

  • 2013   Borgarlistamaður Reykjavíkur

  • 2011   Bókaverðlaun barnanna fyrir bókina Ertu Guð, afi?

  • 2010   Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Ertu Guð, afi?

  • 2010   Bókaverðlaun barnanna fyrir bókina Núll Núll 9.

  • 2005   1. verðlaun í handritasamkeppni Reykjanesbæjar um besta handrit barnabókar (Litla rauða músin).

  • 2000   Barnabókaverðlaun Æskunnar, Búnaðarbankans og  Sjóvár-Almennra fyrir bókina Kýrin sem hvarf. 

  • 1997   Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bókina Margt býr í myrkrinu.

  • 1992   Menningarverðlaun Visa fyrir framlag til barnabókmennta.

  • 1991   Barna- og unglingabókaverðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkurborgar fyrir bókina Tár, bros og takkaskór.

 

 Margt býr í myrkrinu og Nóttin lifnar við voru kjörnar ,,bestu barnabækur aldarinnar“ í vali á Bók aldarinnar sem Bókasamband Íslands stóð fyrir í apríl 1999. Bækurnar höfnuðu í 5. og 6. sæti á lista yfir 100 bestu bækur aldarinnar en alls átti ÞÞ sjö bækur á þeim lista.

ÞÞ er eini íslenski rithöfundurinn sem hefur átt mest seldu og næst mest seldu bókina sama árið – 1992. Þá var unglingabókin Bak við bláu augun í 1. sæti og Lalli ljósastaur í 2. sæti.

bottom of page